Karellen
news

Blær bangsi komin úr sumarleyfi.

31. 10. 2019

Í gær, miðvikudaginn 30. október var fyrsta vinastund vetrarins. Börn og starfsfólk af öllum deildum hittust í salnum og hittu Blæ bangsa. Blær bangsi kom á Krummakletta í vor en fór svo í gott sumarfrí til Ástralíu og kom svo til baka í Álfaborg og kom með fullt af hjálparböngsum með sér sem börn á Lambadal og Smáholti fengu. Blær er einmitt frá Ástralíu og fer alltaf þangað á sumrin. Blær minnir börnin á að gæta hvers annars vel og að vera góður félagi og hjálpar til við ýmis verkefni og faðmar, gleður og huggar börnin. Hjálparbangsinn fylgir þeim þar til þau hætta á leikskólanum.


© 2016 - 2024 Karellen